Eitt mót í viðbót.
Heilir og sælir Bandývinir góðir.
Stjórn Bandývinafélagsins hefur undanfarnar vikur legið undir feldi og velt fyrir sér framhaldi á Bandýgleði. Eins og fram kom á lokahófi síðasta móts voru þó nokkrar líkur á það yrði síðasta mótið sem haldið yrði af félaginu.
Við höfum þó komist að því að rétt sé að halda formlegt lokamót með tilheyrandi húllumhæi og það ætlum við að gera og viljum vona að allir okkar dyggu stuðningmenn muni mæta á það mót.
Það er þó einn hængur á, mótið getur ekki orðið í maí eins og við vonuðum af þó nokkrum ástæðum en við stefnum á að halda það í haust eða í síðasta lagi næsta vor og þá á hefðbundnum tíma.
Við í stjórninni vonum að Bandývinir um land allt taki þessu með ljúfu Bandýskapi og verði klár þegar lokamótið verður.
Hér til hægri á síðunni er könnun sem við bendum fólki á.
Þar til á næsta Bandýmóti,
Stjórn Bandývinafélag Ólafsfjarðar



